Muska
hinir og þessir
04.10.2007 19:47:39 / mamma

sei sei

Jæja og jæja, það kemst enn fátt annað að en ömmustelpan. Helst vildi ég horfa á hana daglega, geri það svo sem þar sem ég glenni myndir framaní í hvurn sem á vegi mínum verður.

Strætóbílstjórinn var soldið hissa en það var líka bara allt í lagi, samstarfsfólk mitt er afskaplega umburðalynt.

 

En svona hreint út sagt og kalt mat þá er hún fullkomin, sterk lík föður sínum, því ekki neitað en líka með Lilju svip.

 

Ég er sumsé alveg svellköld með þetta allt saman tiss.


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.09.2007 19:39:07 / mamma

Amma......

Ég er orðin amma, svei mér þá. Þvílíkur rússibani. Samt töff hvað ég var svöl á kaffistofunni í vinnunni í dag þegar ég fékk eftirfarandi sms "Litla prinsessan er fædd, alveg fullkomin. Hringi í þig á eftir þegar fer allt róast;)"

 

Hvað gerði sú gamla fyrir framan skrilljón manns nú fór að háskæla af eintómri sælu. 

 

Daman fæddist klukkan 14.30 og var 3660 gr og 51 sm.

Ég er að fara á spítalann með -smá- glaðning handa liðinu tek þá að sjálfsögðu fullt af myndum og set inn á mynaalbúmið.

 

Rækallinn ég á ekki vatnsheldann maskara, gæti orðið vandamál

 

Amman alsæla


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.07.2007 20:13:43 / mamma

gubbugubb

 

 

Móð sagðir mín var að segja mér frá því að mér að elsta systurdóttir mín ætlaði að halda frændsystkyna partý heima hjá sér.  Tekið skal fram að konan er á fertugsaldri og gestirnir munu verða á þrítugsaldrinum.

"uss uss uss, hún ætlar að hafa bollu" sagði móðir mín, ég skildi nú ekki alveg hvað væri svona slæmt við það, jú "það endar með þvú að það gubbar einhver á hvíta gólfteppið í stofunni"

 

Það er nefnilega það, þessir unglingar kunna sér ekki hóf í drykkjunni og gubba bara út um allt. Systurnar Kamilla og Hildur Edda sérlega sólgnar í svona görótta drykki.


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.07.2007 21:56:08 / mamma

sei sei sei

Mig hrjáir hálsbólga, kvef, magapest og ljóta.

 

Ég kíkti á myspace síðu drengjanna minna.  Úff, Úff og úff, vinkonurnar.......  flestar myndirnar af þeim segja mér að þær hljóti að eiga þann draum æðstan að starfa sem portkonur. Klæðalitlar, virðast ponsu bognar í hnjánum smá á hlið og svo stútmunnur, stútmunnur á þeim öllum.

Merkilegt, soldið eins og þær séu flestar með frunsu.

 

 

 

  

Keypti tímaritið Nýtt líf í gær, frænkur mínar Kamilla og Hildur Edda eru þar að skýra hvers vegna þær eru einhleypar. Mæli með því að fólk lesi gullkornin en mér finnst það besta þó vera “mér finnst sambönd ekki skemmtileg” Kamilla kemst að þessu en útilokar þó ekki að henni muni hugnast kærasti seinna þegar hún kýs að nýta tilboðin tveir fyrir einn og þegar áhugi hennar á Bingói eflist.

 

Þar las ég líka viðtöl við þrjá drengi. Þar reifuðu þeir skoðanir sínar á þvagfærarakstri. Einn sagði sí svona að ef gróðurinn væri of mikill  þarna þá mætti sleppa káfinu og vinda sér beint í verki.

     

» 1 hafa sagt sína skoðun

21.07.2007 00:33:23 / mamma

grátum

Mikið ofboðslega er þetta tilfinningarúnk landans að fara illa í mig.

Látum fólk gráta og gráta sem mest og þá líður okkur svo ofboðslega vel.

Viljum við þetta, selur þetta? Kastljós fær fínt áhorf þeim mun fleiri sem tárin eru.

Ég finn til með fólki sem á um sárt að binda en ég get ekki fundið fróun að gleðjast yfir eigin hamingju með því að sjá fólk skæla í örvæntingu og vansæld, ojbakkogtuff


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.06.2007 10:38:12 / mamma

æi

Veit ég veit, aldurinn er að færast yfir mig.  Ekki hægt og sígandi heldur á ógnarhraða.

Er ekki frá því að ég verði virðulegri með degi hverjum, meira að segja um daginn þegar ég var að bíða eftir lyftunni, við hlið mér tveir sjúkraflutningamenn, þá daðraði ég nánast ekki neitt.

Hvorugur þeirra fór hjá sér við ámátlegar athugasemdir mínar, brostu bara góðlátlega, æi

 

Á Lansanum, þar sem ég vinn þessa dagana, eru svo eldri læknar og læknabörn. Krúttleg lítil börn í sloppum sem þykjast vera læknar.  Það er voða krúttlegt en ekki traustvekjandi.

 Kannski er ég að verða gömul, hver veit, það bendir allt til þess.

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.06.2007 08:33:13 / mamma

ber er hver að baki nema.......

Systurdætur mínar eru sérkennilegar stúlkur, undarlegt þar sem ættin er að öllu jöfnu hrikalega venjulegt fólk, sem sker sig ekki úr fjöldanum.  En þessar eru dálítið undarlegar.

Fyrst ber að nefna þá eldri, Evu Kamillu. Tveggja barna móðir og þar stendur hún sig með stakri prýði, vel gerð afkvæmin en svo e´r hún í eðli sínu einn sá mesti sorakjaftur sem ég hef hitt á lífsleiðinni.

Hún getur fengið hvaða harðjaxl til að blygðast sín og leggjast undir feld og dvelja þar.

Búðarráp með henni er ekki fyrir nema allra hörðustu handrukkara og verðbréfasala.

Krúttuleg jólagjafainnkaup með stúlkunni geta breyst í verstu martröð manns.

"Viltu rétta mér gyllinæðastílinn" þetta kallaði stúlkan yfir Stjörnutorgið í Kringlunni, "mig klæjar svo hrikalega í útbrotunum".

Hún á það líka til að æða á ókunnuga drengi, oftast yngir en hún, faðma þá og þakka fyrir síðast og nú skortir mig kjark til að hafa eftir henni orðin, ég kann að blygðast mín.

 

"ertu kannski til í að prófa rúmið með mér" sagði stúlkan við sölumanninn í IKEA, sem hljóp burtu snökktandi.  En ég get þakkað stúlkunni það að fátt getur hreyft við mér, fátt kemur mér úr jafnvægi.

En svo á hún sér líka þessa líka mjúku hlið, hún semur mikið af ljóðum og er með uppskriftasíðu í smíðum, þar sem allt er eldað frá grunni. Stúlkan er snillingur í að safta og sulta.

 

Hin, Hildur Edda, ´hún leynir á sér, á létt með að líta gáfumannlega út, afskaplega snyrtileg og vel gefin stúlka en á það svo til að skrökva upp á virðulegar, aldraðar móðursystur, aðallega Soffu systur en á það þó til að segja ýmislegt um  mig sem, eins og allir sem mig þekkja,  er hrein og klár vitleysa.  Samt þori ég minna að segja um hana þar sem hún er blaðamaður og gæti því skrifað eitthvað miður huggulegt sem ég tæki nærri mér, ég er svo viðkvæm kona.


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.06.2007 14:47:58 / mamma

......

Ég er með hor, hálsbólgu og almennan vibba. Auk þess er mér sagt að ég sé viðbjóðsleg, blygðunarlaus hrææta, ét nebbla kjöt, og hana nú.

Annars lítið um að vera, jú útskriftir.  Siggi frændi minn var að klára MK síðustu helgi, hann fékk verðlaun úr Ingólfssjóði fyrir að auka mannúð með tilvist sinni, svei mér þá hann líkist mér meira með hverjum deginum drengurinn.

Júlía Emm útskrifast svo úr MR í dag, held að hún hljóti annars konar verðlaun, eitthvað í sambandi við daður, þar eru svona systurnar.

 

Teitur frændi er á villigötum, einhver amerísk gála klófesti barnið og núna er stefnan sett á að vinna við einhverskonar gæðastjónun á spítala þarna í útlandinu, ég kem til með að telja hann ofan af þessari vitleysu, útlensk kærasta, puff nei, við mamma hans getum fundið fyrir hann vel gerða íslenska stúlku ég er nú þegar með eina í huga.

 

Annað jú, það verður sumarbrúðkaup, Kamilla frænka ætlar að gifta sig í sumar, vitið þið um einhvern eða einhverja sem kemur til greina???????


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.05.2007 11:53:39 / mamma

Já og ég á hann

InnleggInnlegg: Fimmtudaginn 10 Maí 2007 21:59:51    Efni innleggs: Svara með tilvísun

Sælir allir HKingar og til hamingju með bikarinn. Að sjálfsögðu hlaut þetta að gerast með þvílíkan snilling innaborðs og hinn þekkta múrara semsagt Ofur-Baldur.
Það má segja að dollurnar hafi lent á ágætisstöðum þetta tímabilið við Valsmenn tókum að sjálfsögðu þann STÓRA, Elli Már og Óli Víðir eitt kvikindi og síðan HK einn, vantaði bara að Bjöggi vinur minn ynni eitthvað..........

Síðan vil ég minna alla á að það sem bæði háir og lágir á þessu landi hafa beðið eftir með fuglinn í hálsinum, gerist í haust en meira um þann stórviðburð seinna

Til baka efst á síðu

 

 

 

 

Gat ekki látið það vera að taka umsögn af spjallþræði Hk, ekkert að því að grobba smá.

Sjá uppsetningu notanda Senda einkapóst

» 0 hafa sagt sína skoðun

11.05.2007 11:50:42 / mamma

Húrra og húrra

Dollan er komin í Digró !

HK sigraði Stjörnuna í æsispennandi leik 29-28 í Digranesinu og er því Deildarbikarmeistari. HK byrjaði leikinn mjög vel og náðu fljótlega þriggja marka forskoti 6-3. Stjörnumenn eru með baráttuglatt og reynslumikið lið og náðu að vinna sig aftur inn í leikinn. Fyrri hálfleikur var mjög jafn og spennandi eins og sannur úrslitaleikur á að vera. Það vantaði ekki hörku í leikinn frekar en hina tvo sem voru búnir að fara fram á milli þessara liða. Stjörnumenn fengu að berja á leikmönnum HK í Ásgarði og reyndu það aftur, eina uppskera þeirra úr því var rautt spjald á klaufalegt brot Tite Kalandadze. Hann keyrði út úr varnarleiknum og beint í andlitið á Gústa. Liðin fóru jöfn inn í klefa í hálfleik, 16-16.

Í seinni hálfleik stigu Stjörnumenn upp og náðu mest þriggja marka forustu en heimamenn voru langt frá því að gefast upp og börðust aftur inn í leikinn á lokakafla leiksins. Roland Eradze var sá leikmaður sem var HKingum erfiðastur í gær en hann fór hreinlega á kostum í seinni hálfleik. Það dugði samt ekki til að brjóta niður lið HK sem hélt áfram að berjast og það skilaði... Dollu í Digró !

Það er erfitt að velja hver var besti maður HK í gær en Ólafur Bjarki Ragnarsson stal svo sannarlega sviðsljósinu með innkomu sinni á lokakafla leiksins. Hann tók á skarið og skoraði hreint glæsileg mörk, frábær árangur hjá þessum unga og gríðarlega efnilega leikmanni HK.


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.05.2007 08:51:27 / mamma

Úr einu í annað

Ég las í einhverju blaði í gær góð ráð og leiðbeiningar fyrir vorhreingerningu, leist vel á þetta allt saman sem lestrarefni. Skammaðist mín svo til að brjóta saman haug af þvotti sem hefði gubbast inn í herbergið síðustu daga. Þar með er minni vorhreingerningu lokið.

Dekur var fyrirsögn á einni grein sem ég renndi yfir, leist vel á.

Þar var fjallað um hvað dekur væri gott fyrir sálina. Það fór um mig þegar ég var hálfnuð að lesa meinta dekrið, þetta var sumsé fegrun.

1: Þurrbursta húðina vel

2: Nota andlitsmaska

3: Maski í hárið

4: Grófkorna skrúbb í sturtunni

5: Enda á kaldri sturtu, ku vera gott fyrir húð og hár

Síðan allskyns góð rakakrem og að sjálfsögðu upplýsingar um bestu háreyðingarkremin og kalt vax og og og

Mér finnst þetta bara ekkert minna á dekur, þetta er púl vinna, vinna sem ég skorast svo sem ekki undan, tja nema stundum. En að gera þetta allt á einum degi og flokka sem lúxus nei og nei.

 

Ég hef nú svo sem fengið minn skerf af vorhreingerningum. Ákveðið atvik í lífi mínu varð til þess að ég neyddist til að taka til.

Ég fékk ekki, frekar en nokkur annar, ábyrgðarskírteini upp á áfallafrítt líf. Það hefur nú svo sem eitt og annað bankað upp á sem hefur tekið á en allt blessast að lokum.

Sjaldnast gefst tími í tiltekt í sálinni þegar eitthvað bjátar á, en þó getur það gerst. Það held ég að sé manni hollt þó að það sé ekkert skemmtilegt meðan á tiltekt stendur, eins og fólk þekkir eflaust flest. En þegar búið er að flokka og raða þá er það ákveðinn léttir.

Sumarhreingerningin þar er afstaðin, með prýðilegum árangri, þá eru það skáparnir næst, mætti segja mér að þar fari ekki færri ruslapokarnir út.

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.05.2007 18:05:09 / mamma

öldrun og útlit

Talandi um að stefna að því að verða pæjuamma, þá er einn (ok, nokkrir) hængur á. Ég þarf minn svefn,´minn sjö tíma svefn. Fólkið sem býr á hæðinni fyrir ofan mig er afskplega skemmtanaglatt fólk, ekki bara að því þyki gott og sjálfsagt að bjóða í samkvæmi hvenær sem er þá skiptir tíminn engu máli, Klukkan 5 aðfaranótt mánudags er bara hið besta mál, að þeirra mati, og tónlistin, almáttugur minn, veit ekki hvar þau grafa upp þessa slagara. Svo er líka sniðugt að henda sígarettum ofan af svölum á þvottinn minn, garg. Enda var sú gamla frekar tussuleg í dag, sjö tíma svefn náðist ekki, þrír tímar nærri lagi, það er úr vöndu að ráða.

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.05.2007 13:16:34 / mamma

ojbarasta

Úff ég hef ákveðið að vera pæjuamma, það þýðir að ég þarf að fara í megrun.

Þyngdarlögmálið er að hrekkja mig, allt farið að síga, og orðið soldið mikið magn sem er orðið utan á mér og sumsé sígur.

Nú er átak í gangi, ekki mitt uppáhald....... sjáum hvað setur


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.05.2007 13:25:14 / mamma

Og það er stúlka

Og það er stelpa, krílið er sumsé stúlka. Leiðin liggur í næstu hannyrðaverslun þar sem ég mun kaupa garn í öllum bleikum tónum sem til eru og taka til að prjóna peysur og kjóla hvenær sem færi gefst. Sónamyndir sýna sérdeilis myndarlegt barn með langar tær og langa fingur, hún veifaði okkur snúllan en neitaði að sýna vangasvipinn. Allir í skýjunum...... lífið er ljúft

» 0 hafa sagt sína skoðun

04.05.2007 09:03:48 / mamma

jamm og já

Í dag fæ ég fregnir af því hvort kynið afkomandi minn, barnabarnið er.  Þetta er mjög spennandi, hef síðustu vikur túlkað alla mína drauma sem skilaboð um kyn barnsins.  Sigling á Mývatni með vinum mínum var merki um að barnið væri stúlka, draumurinn þar sem ég var á leið í ferðalag með sömu vinum mínum var merki um að barnið væri drengur, alveg ljóst að berdreymin er ég ekki.

 

Skrítin tilfinning en jafnframt svo undursamleg að önnur kynslóð sé að koma í heiminn. Hitti kunningja minn um daginn sem man eftir verðandi föður þar sem hann sat á gólfinu í Alþýðubandalagshúsinu í Kópavogi og slefaði, bágt átti maðurinn með að trúa því að slefudýrið væri að verða faðir, við sem höfum nánast ekkert elst.

 

Lífið er stöðugt að bjóða upp á eitthvað óvænt, gott og vont og oftar en ekki í bland.

Ekki að ég geti kvartað, lífið er mér ósköp ljúft, það er nefnilega ekkert svo með öllu illt að ekki boði eitthvað gott og það er bara soldið rétt finnst mér. Jafnvel í sorg getur falist mikil gleði, það er ekkert bara svart eða hvítt. Mér finns ég afar lánsöm kona og ég er það.

Tugga, samt satt, að það er ekkert sjálfgefið að eiga heilbrigð og vel gerð börn, kýs að hundsa stjórnmálaskoðun sonar míns númer tvö, góðan maka og flotta fjölskyldu en allt þetta hef ég.

Svei mér ef ég er ekki að gerast væmin, en það er ekkert sem mínar kæru, yndislegu systurdætur geta ekki bjargað, með eindæmum kaldhæðnar.  Þarf að fara að bjóða þeim í mat og sjá hvort þær geta ekki leiðrétt mig aðeins, þá vitið þið það stúlkur, að prófum loknum er það matur á Hlemmi. 

Annars er aldrei að vita hvernig þetta endar hjá mér gæti gengið úr handabandafélaginu og farið yfir í kossateymið, ekki viljið þið það?????


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 15